Þrír á förum frá Man City - Dalot orðaður við Real Madrid - Framherji West Ham til Milan?
   lau 19. október 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Alfreð mætir Bayern
Stórleikur í Dortmund
Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg mæta margföldum Þýskalandsmeisturum FC Bayern í dag.

Þetta verður þung þraut fyrir Alfreð og félaga þar sem Bayern tapaði í síðustu umferð og er tveimur stigum frá toppnum. Lærisveinar Niko Kovac munu því væntanlega mæta einstaklinga grimmir til leiks í dag.

Augsburg er aftur á móti í neðri hlutanum, með fimm stig eftir sjö umferðir.

RB Leipzig fór vel af stað en er aðeins búið að missa dampinn. Liðið er jafnt Bayern á stigum eftir slakt gengi í kringum mánaðarmótin.

Borussia Mönchengladbach er búið að vinna fjóra leiki í röð og trónir á toppnum en sú gleði gæti orðið skammlíf, því liðið heimsækir Borussia Dortmund í síðasta leik dagsins.

Dortmund er búið að gera þrjú jafntefli í röð og þráir að snúa aftur á sigurbraut líkt og erkifjendur sínir í Bayern.

Leikir dagsins:
13:30 Augsburg - FC Bayern
13:30 RB Leipzig - Wolfsburg
13:30 Dusseldorf - Mainz
13:30 Union Berlin - Freiburg
13:30 Werder Bremen - Hertha Berlin
16:30 Dortmund - M'Gladbach
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 14 12 2 0 51 11 +40 38
2 RB Leipzig 14 9 2 3 29 16 +13 29
3 Dortmund 14 8 5 1 24 12 +12 29
4 Leverkusen 14 8 2 4 30 19 +11 26
5 Hoffenheim 14 8 2 4 29 20 +9 26
6 Stuttgart 14 8 1 5 25 22 +3 25
7 Eintracht Frankfurt 14 7 3 4 29 29 0 24
8 Union Berlin 14 5 3 6 19 23 -4 18
9 Freiburg 14 4 5 5 21 23 -2 17
10 Köln 14 4 4 6 22 23 -1 16
11 Gladbach 14 4 4 6 18 22 -4 16
12 Werder 14 4 4 6 18 28 -10 16
13 Wolfsburg 14 4 3 7 20 24 -4 15
14 Hamburger 14 4 3 7 15 24 -9 15
15 Augsburg 14 4 1 9 17 28 -11 13
16 St. Pauli 14 3 2 9 13 26 -13 11
17 Heidenheim 14 3 2 9 13 30 -17 11
18 Mainz 14 1 4 9 13 26 -13 7
Athugasemdir
banner