Úlfarnir höfðu betur gegn Leeds United er liðin mættust í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Raul Jimenez gerði eina mark leiksins í síðari hálfleik þegar skot hans fór af varnarmanni, breytti um stefnu og endaði í netinu.
Undir lok leiksins var brotið á Jimenez og lá mexíkóski sóknarmaðurinn eftir í jörðinni sárkvalinn. Á leið sinni niður sparkaði hann þó í Robin Koch, sem braut á honum, og hefði getað meitt alvarlega enda takkarnir nálægt viðkvæmu svæði.
Atvikið er hægt að sjá hér fyrir neðan en þeir eru nokkrir leikmennirnir sem hefðu fiskað Jimenez útaf með smá leikaraskap og hjálp VAR tækninnar.
Leeds vs Wolves: Jimenez kicks out at Koch from r/soccer
Athugasemdir