19.11.12 - 10:47
Magnús Már Einarsson
Emmanuel Frimpong til Charlton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Charlton hefur fengið miðjumaninn Emmanuel Frimpong á láni frá Arsenal en samningurinn gildir til áramóta.
Þessi tvítugi miðjumaður fór til Wolves á láni í janúar á þessu ári en sleit síðan krossband í febrúar.
Frimpong snéri aftur eftir sjö mánaða fjarveru í september en hann hefur fengið fá tækifæri hjá Arsenal og því fer hann núna til Charlton á láni.
Þetta þýðir að samkeppnin verður ennþá meiri fyrir Eggert Gunnþór Jónsson sem gekk í raðir Charlton á láni á dögunum en hann var einnig að berjast við Frimpong um sæti í liðinu hjá Wolves á síðasta tímabili.
Eggert meiddist á fyrstu æfingu sinni hjá Charlton en hann var ekki með liðinu í 1-0 sigri á Burnley um helgina.