Fotbolti.net
19.11.18 - 18:00
Arnar Helgi Magnússon

Þórdís Elva í Fylki (Staðfest)

Þórdís Elva í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Þórdís Elva Ágústsdóttir hefur gengið til liðs við Fylki en hún kemur til félagsins frá FH.
Þórdís var á láni hjá Haukum í sumar þar sem hún er uppalin en hún lék lykilhlutverk með þeim. Hún spilaði allan átján leiki í deildinni sem og einn leik í Mjólkurbikarnum.

Haukar enduðu í 5. sæti deildarinnar á meðan Fylkir tryggði sér sæti í Pepsi deildinni.

Þórdís er fædd árið 2000 en þrátt fyrir ungan aldur hefur hún spilað sextíu meistaraflokksleiki og skorað í þeim fimm mörk. Hún á að baki sjö leiki með U-17 ára landsliði Íslands.

„Við bjóðum Þórdísi velkomna í Fylki," segir í fréttatilkynningu sem að félagið sendi út.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.