Eden Hazard, kantmaður Real Madrid, segist vera í góðu formi en hann hefur fengið gagnrýni á þessu ári fyrir að vera of þungur.
Hazard kom til Real Madrid frá Chelsea í sumar og skoraði einungis eitt mark í fyrstu ellefu leikjum sínum með liðinu.
Hann hefur lagt upp þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum og segist vera kominn í gott form.
„Ég hef verið í góðu standi undanfarin mánuð og meiðslalaus," sagði Hazard.
„Ég er í góðu formi. Þegar ég er inni á vellinum reyni ég alltaf að gera mitt besta, bæði með Real Madrid og Belgíu. Ég vil halda þessu áfram."
Athugasemdir