Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 19. nóvember 2019 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Maradona hættur með Gimnasia (Staðfest)
Diego Maradona er hættur með Gimnasia
Diego Maradona er hættur með Gimnasia
Mynd: EPA
Argentínski þjálfarinn Diego Armando Maradona er hættur með Gimnasia.

Maradona tók við Gimnasia í byrjun september en það byrjaði ansi illa hjá liðinu. Það tapaði fyrstu þremur leikjunum undir hans stjórn en nú hefur liðið unnið þrjá af síðustu fimm.

Argentínski snillingurinn hefur nú ákveðið að hætta með liðið aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa tekið við þjálfun þess.

Ástæðan er sú að Gabriel Pellegrino, forseti Gimnasia, hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri og ákvað því Maradona að yfirgefa félagið.

Gimnasia situr í 22. sæti deildarinnar þegar þrír leikir eru eftir af tímabilinu en óvíst er hvað Maradona mun taka sér fyrir hendur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner