Hadda stendur til boða að starfa áfram hjá KA

Var aðalþjálfari KA í rúm fjögur ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppalinn hjá Völsungi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gerði KA að bikarmeisturum 2024, fyrsti bikartitill KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liðið endaði með 29 stig sem hefði dugað í þremur af fimm skiptum í 27 leikja móti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef væntingarnar eru ekki réttar, þá fara hlutirnir yfirleitt ekki vel

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hjörvar Maronsson (til hægri) er formaður fótboltadeildar KA. Hér er hann við hlið Atla Viðars Björnssonar fyrir hátt í 20 árum síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haddi og Eiður Smári stýrður KA saman síðustu tvo mánuði tímabilsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistarar 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KA sló út Dundalk í undankeppni Sambandsdeildarinnar sumarið 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marki fagnað í Evrópuleik gegn Silkeborg sumarið 2025.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Reyndist mikið högg að missa Rodri út með slitið krossband snemma tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ekkert launungarmál að það voru vonbrigði að KA hélt sér ekki uppi

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ætlar til Tenerife og eftir heimkomu mun hann skoða möguleikana sem eru í boði.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Var aðalþjálfari KA í rúm fjögur ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Undir stjórn Hadda varð KA bikarmeistari í fyrsta sinn og endaði árin 2023-25 í 7. sæti deildarinnar. Í ár féll KA úr Bestu deildinni með 29 stig sem hefði dugað tímabilin 2022-2024 til að halda sæti sínu í deildinni.
Fótbolti.net ræddi við Hadda í dag og var fyrsta spurning út í uppeldisfélagið Völsung sem hann hefur verið orðaður við. Völsungur hefur ekki ráðið þjálfara eftir að síðasta tímabili lauk.

Af hverju féll KA?
„Já, ég get staðfest það að ég er búinn að heyra aðeins í Völsungunum, er ekki búinn að ræða neitt alvarlega við þá, en hef fengið áhuga þaðan og frá fleiri stöðum. Ég hef sagt við alla sem hafa haft samband að ég væri í pásu, ég þyrfti aðeins að kúpla mig út, er búinn að vera í fótbolta á hæsta stigi í mörg ár og aldrei fengið frí. Ég veit að hlutirnir gerast hratt í fótbolta og að ég þyrfti að búa mér til pláss, ég vildi ná að anda, gera þetta almennilega upp og fá smá frí í fyrsta skiptið á ævinni. Ég er bara enn þá í þeim fasa, er að fara til Tene núna 1. desember og ég er búinn að segja við öll liðin að ég muni ekkert fara í samningaviðræður við neinn fyrr en ég kem heim frá Tene," segir Haddi.
Þannig að þú ert ekkert að útiloka það að vera í þjálfun á næsta tímabili?
„Nei, ég útiloka það ekki en alls ekkert víst samt. Það er náttúrulega annaðhvort það eða að fara á almenna vinnumarkaðinn. Ég er ekki búinn að heyra í neinum eða spá hvort einhver staða sé laus ennþá. Ég kúplaði mig út, þarf ekki að drífa mig og er aðeins að slaka á."
Sérðu þá sviðsmynd í vetur að þú flytjir frá Akureyri?
„Nei, mér finnst það mjög ólíklegt eins og staðan er núna, er miklu opnari fyrir því í framtíðinni þegar yngri börnin verða orðin aðeins eldri, við erum með fjögur börn og þrjú í grunnskóla. Þegar þau verða aðeins eldri, þá verð ég opnari fyrir því. En ef það kæmi tilboð þar sem ég yrði að flytja suður í vetur þá myndi ég segja nei á fyrstu mínútunni, það er ekki að fara að gerast á þessu ári."
Með betra lið á pappír en á vellinum
Þegar þú fékkst að vita að þú yrðir ekki áfram þjálfari KA, hvernig var að heyra það?
„Ég veit náttúrulega hvernig þessi heimur virkar. Við áttum bara gott samtal, ég og Hjörvar, við höfum tekið nokkra fundi áður þegar staðan hefur verið ekki eins góð og við vonuðumst til. Þetta var bara mjög þægilegt, það voru engin læti, en auðvitað er ég ekki sammála öllu sem verður þess valdandi að ég verði þjálfari liðsins ekki áfram. Sumt af því var ég búinn að tala um áður og vara við. Það er ekkert launungarmál, en þetta er oft niðurstaðan þegar hlutirnir ganga ekki upp, oft niðurstaðan að þjálfarinn er látinn fara og það er ekkert launungarmál að það voru vonbrigði að KA hélt sér ekki uppi."
„En fyrir þá sem eru nálægt liðinu og vita ýmsa hluti, þá kannski lítur það öðruvísi út en ef maður horfir bara á nöfn á pappír sem voru í KA. Margir af þeim komu lítið eða aldrei inn á völlinn. Við vorum með góðan leikmannahóp en því miður voru bara svo rosalega margir öflugir leikmenn ekki inni á vellinum. Ég er heiðarlegur að við vorum með betra lið á pappír en mér fannst ég vera með verra lið inni á vellinum en hin árin sem ég hef verið í KA."
Meiðsli spiluðu stóra rullu hjá KA á tímabilinu og Haddi vill meina að þau hafi haft meiri áhrif en talað hefur verið um.
„Ég held að öll lið yrðu í miklu veseni ef átta leikmenn eru í langtímameiðslum, það eru ellefu leikmenn inni á vellinum. Það var rosalegt högg. Þetta munaði litlu, auðvitað erum við ekki sáttir að vera í botnbaráttu, þetta munaði einu stigi. Ég held að það hafi ekkert lið fallið með fleiri stig, vorum grátlega nálægt því að halda okkur."
„Við vorum orðnir öflugir í lokin, unnum fjóra af síðustu sex leikjunum, en það var bara of seint. Því miður náðum við því ekki úr hópnum sem við vildum. Ég hef mínar skoðanir á, að sjálfsögðu, ansi mörgum hlutum. En ég held að það sé besta að ég sé ekki að tjá mig mikið um það í fjölmiðlum. Það hjálpar ekki neitt og gerir stöðuna ekki betri."
Stendur til boða að vera áfram hjá KA
Það var slúðrað um að þér hafi staðið til boða að vinna áfram hjá KA, er það rétt?
„Já, mér stendur til boða að halda áfram í KA."
Getur þú sagt eitthvað um hvaða starf það er?
„Nei, ég vil ekkert fara út í það. Ég er ekki búinn að fá það á hreint nákvæmlega hvaða starf það var en það er 100% staða í KA og við höfum ekkert rætt það nánar. Eins og ég sagði áðan þá sagði ég við alla að ég ætlaði að kúpla mig út."
„Það er líka kominn nýr þjálfari (Túfa), ég vil gefa honum smá svigrúm að koma inn án þess að það sé endalaust verið að tala um mig. Það er að byrja nýtt tímabil, KA á leið í 1. deild og nú er verið að skoða hvaða leikmenn verða áfram og hvaða leikmenn koma inn. KA er sem dæmi búið að ná í einn frábæran leikmann, Niko, sem verður frábær fyrir KA. Við vorum búnir að reyna að fá hann áður, en það gekk núna."
„Ég hef ekki rætt meira við KA og veit ekki nákvæmlega hver staðan er, en um miðjan desember verð ég tilbúin að setjast niður og ræða við þau félög sem hafa áhuga á að ræða við mig."
Sagði að félagið hefði ekki verið eins hungrað
Haddi ræddi við Vísi fyrr í þessum mánuði og var hann spurður út í ummæli úr því viðtali.
„Þannig að það er bara fullt af góðum hlutum sem gerðust. En í ár, og mér fannst það líka byrja í fyrra, að félagið var ekki eins hungrað. Það eru komin tíu ár og ég fann bara svona smá doða og við náðum að redda því vel í fyrra en en náum því bara ekki í ár," sagði Haddi í viðtalinu við Val Pál á Vísi og var hann sérstaklega spurður út í feitletraða hlutann. Getur þú veitt innsýn inn í hvað þú átt við með þessu?
„Já, ég vil ekki hljóma eins og ég sé eitthvað sár eða bitur. Ef horft er yfir tímann sem ég er að þjálfa hjá KA þá er hann býsna góður, það hefur verið talað um KA hitt og KA þetta í fjölmiðlum, en við vitum báðir sem erum nálægt þessu að KA er ekki efst í goggunarröðinni. Við höfum, að mínu viti, náð virkilega flottum árangri. Ég er búinn að fá mörg skilaboð frá fólki sem þakkaði fyrir, falleg ummæli. Það sem ég á við er að þetta hefur verið góður tími og það stendur upp úr hjá mér."
„Það sem ég var að meina er að það varð allt í einu ekkert spennandi að vera um miðja deild. Fyrst þegar KA kemur upp var það frábært eins og fyrir öll lið sem koma upp, liðið endar í 7. sæti og það er gaman. Svo endum við aftur í 7. sæti og það er aftur gaman. En á ári tíu er ekkert voðalega gaman að enda í 7. sæti. Það varð ekki eins spennandi."
„Á þessum tíma sem ég var þá upplifðum við mjög góða tíma. Við náðum einu sinni fimmta sæti þegar ég var leikmaður og Óli Stefán að stýra. Svo náðum við fjórða sæti og næst öðru sæti, þannig við upplifum góða tíma. Við fórum í tvo bikarúrslitaleiki, verðum bikarmeistarar og spilum í Evrópukeppni. Þetta var allt svo spennandi, en svo verður þetta ekki eins spennandi. Mér fannst við einhvern veginn komnir aðeins fram úr okkur. Það voru búnir tveir leikir í deildinni í sumar, á móti Víkingi og Stjörnunni. Bæði lið ætluðu sér að verða Íslandsmeistarar og voru vel mönnuð. Annað þeirra varð meistari. Við töpuðum þessum leikjum heima, áttum góða leiki. Töpuðum 3-2 á móti Stjörnunni þar sem var dæmt af okkur löglegt mark sem meira að segja dómararnir viðurkenndu. Þá voru strax komnar athugasemd: „Oh, KA aftur að byrja illa." Það voru búnir tveir leikir og mér fannst við vera komnir aðeins fram úr okkur. Það er erfitt að ná þeim árangri sem þig langar að ná ef andrúmsloftið er þannig."
„Ég vil ekki að þetta hljómi of neikvætt. KA er eina landsbyggðarfélagið sem hafði verið í tíu ár í úrvalsdeildinni. Það er eðlilegt að það komi kynslóðaskipti, hlutirnir gangi misvel. Ég skil að það sé ekki eins spennandi ef það líða mörg ár af því sama og þú vilt eitthvað meira. Mér finnst KA þurfa að skoða hvað sé gott fyrir KA, hvar viljum við standa. Viljum við standa fyrir að ná „bara" eins góðum árangri og hægt er, viljum við standa fyrir að vera með marga stráka af Norðurlandi, eða viljum við standa fyrir að spila fleiri ungum eins og var gert í sumar. Þetta er eitthvað sem við höfum oft rætt og ég held að KA þurfi að setjast niður og búa til stefnu í þessu, því það er ekki hægt að gera allt af þessu ásamt því að selja bestu leikmennina í burtu. Það gengur ekki upp þegar þú ert á þeim stað í goggunarröðinni sem lið úti á landi eru. Það var það sem ég var að meina með þessum ummælum. Meiningin er ekki að tala KA niður. Félög fara í gegnum sín tímabil, höfum séð KR, Val og FH lenda í smá lægð, það er bara eðlilegt."
„KA er frábært félag sem mun komast aftur í úrvalsdeild og það vonandi strax á fyrst ári. Svo þarf að ræða hvar félagið sé statt hverju sinni, leikmannalega séð og hvað sé raunsætt að gera og hverjar væntingarnar eru. Ef væntingarnar eru ekki réttar, þá fara hlutirnir yfirleitt ekki vel."
Jafnvægið var ekki rétt
Hvernig fannst þér jafnvægið í leikmannahópnum komandi inn í tímabilið? Kannski sérstaklega á miðsvæðinu, manni fannst of mikið áfall þegar Rodri datt út, bæði varðandi hjarta varnarinnar og miðsvæðið.
„Þetta er bara hárrétt metið. Við vorum mjög þunnskipaðir á þessu svæði og Rodri, sem er að mínu viti klárasti miðjumaður Íslands, hann er orðinn aðeins eldri en fyrir KA er hann virkilega, virkilega, virkilega mikilvægur. Hann náttúrulega slítur krossband í fjórða leik. Bjarni Aðalsteins ákvað að flytja til Danmerkur hvar kærastan hans er í námi hann farinn að spila þar. Á sama tíma fer Ívar í Breiðablik. Þetta var bara of mikið högg á þessu svæði."
„Það er ekkert launungarmál að jafnvægið í liðinu var ekki rétt og það er eitthvað sem ég held að allir viti og eru sammála um. Það er engum einum um það að kenna, við spjölluðum um þetta."
„Svo það sé tekið fram, þó að ég hafi verið rekinn frá KA, þá hef ég verið virkilega ánægður með stjórn KA og átt í mjög góðum samskiptum við þá. Árangurinn síðustu tíu ár hefur verið frábær, besti kafli í sögu KA. En allir góðir hlutir taka einhvern tímann endi og þannig fór þetta," segir Haddi að lokum.

Uppalinn hjá Völsungi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gerði KA að bikarmeisturum 2024, fyrsti bikartitill KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liðið endaði með 29 stig sem hefði dugað í þremur af fimm skiptum í 27 leikja móti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef væntingarnar eru ekki réttar, þá fara hlutirnir yfirleitt ekki vel

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hjörvar Maronsson (til hægri) er formaður fótboltadeildar KA. Hér er hann við hlið Atla Viðars Björnssonar fyrir hátt í 20 árum síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haddi og Eiður Smári stýrður KA saman síðustu tvo mánuði tímabilsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistarar 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KA sló út Dundalk í undankeppni Sambandsdeildarinnar sumarið 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marki fagnað í Evrópuleik gegn Silkeborg sumarið 2025.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Reyndist mikið högg að missa Rodri út með slitið krossband snemma tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ekkert launungarmál að það voru vonbrigði að KA hélt sér ekki uppi

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ætlar til Tenerife og eftir heimkomu mun hann skoða möguleikana sem eru í boði.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
