Fotbolti.net
19.12.12 - 15:10
Elvar Geir Magnússon

Friðrik Ellert sjúkraþjálfari til Stjörnunnar (Staðfest)

Friðrik að stöfum fyrir Val.

Friðrik að stöfum fyrir Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sjúkraþjálfarinn Friðrik Ellert Jónsson hefur söðlað um og er tekinn til starfa hjá Stjörnunni eftir tólf tímabil hjá Val. Friðrik upplifiði skin og skúrir á Hlíðarenda.
„Það kemur fólki mjög á óvart að sjá mig merktan Stjörnunni eftir að ég var þetta lengi hjá mínu félagi,\" segir Friðrik.

„Maður vann með fjölmörgum leikmönnum á Hlíðarenda og liðið vann alla titla sem hægt var að vinna. Svo upplifði maður það einnig að falla með liðinu.\"

Mikill metnaður er í Garðabænum fyrir komandi tímabili og öflugt teymi kringum meistaraflokka félagsins. Logi Ólafsson tók við þjálfun karlaliðsins eftir tímabilið og Rúnar Páll Sigmundsson er honum til aðstoðar

„Það var kominn tími fyrir mig að breyta til og spennandi tímar eru framundan í Garðabænum. Ég skil við Val í góðu, þetta hefur ekkert með þjálfarann eða stjórnina að gera og hefur heldur ekkert að gera með peninga heldur. Ég þurfti bara sjálfur á breytingu að halda,\" segir Friðrik.

Hlakkar honum ekki til að takast á við meiðslapésa Stjörnunnar?

„Það eru þannig leikmenn í öllum liðum. Maður fékk að vinna með nokkrum hjá Val sem hafa verið í vandræðum vegna meiðsla og það gekk mestmegnis vel.\"
Friðrik Ellert sjúkraþjálfari til Stjörnunnar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.