19.12.12 - 07:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Lucio til Sao Paolo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíska varnartröllið Lucio skrifaði í gær undir hjá Sao Paolo í heimalandinu eftir að hafa losnað undan samningi hjá Juventus í fyrradag.
Lucio spilaði aðeins fjóra leiki með Juventus síðan hann kom frá Inter í sumar og bað hann því um að fá lausan samning.
Nú daginn eftir hefur þessi 34 ára varnarmaður fundið sér nýtt félag og mun snúa aftur til síns heima í fyrsta sinn síðan 2001 þegar hann yfirgaf Leverkusen.
Þá lék Lucio einnig með Bayern München og var í sigurliði Brasilíu á HM 2002.
,,Fyrir okkur er draumur að rætast að fá Lucio,\" sagði Baptista, yfirmaður íþróttamála hjá Sao Paolo, eftir að Lucio hafði skrifað undir tveggja ára samning.