19.12.18 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefán Birgir í Keflavík (Staðfest)
Miklar breytingar fyrir næsta tímabil

Stefán Birgir í leik með Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stefán Birgir í leik með Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Keflavík hefur samið við Stefán Birgi Jóhannesson fyrir næsta tímabil í Inkasso-deildinni.
Stefán Birgir sem er miðjumaður fæddur 1993 kemur til Keflavíkur frá nágrönnunum í Njarðvík.
Hann spilaði 21 leik með Njarðvík á síðasta tímabili í Inkasso-deildinni og skoraði eitt mark. Stefán hefur spilað með Njarðvík frá 2014 en hann hefur einnig leikið með Leikni R. og Fram.
Keflavík mun leika í Inkasso-deildinni á næsta tímabili eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Auk þess að semja við Stefán Birgi, þá hefur Keflavík náð að krækja í Kristófer Pál Viðarsson frá Selfossi, Magnús Þór Magnússon einnig frá Njarðvík og Jóhann Arnarsson, ungan leikmann frá FH.
Margir leikmenn eru þá farnir frá Keflavík. Danirnir Lasse Rise og Jeppe Hansen eru farnir ásamt Juraj Grizelj og Marko Nikolic. Einar Orri Einarsson yfirgaf einnig Keflavík og fór í Kórdrengi.
Óvíst er hvort fyrirliðinn Marc McAusland verði áfram í herbúðum Keflavíkur. Hann hefur fengið leyfi til að ræða við önnur félög.
Fótbolti.net mun fljótlega birta komnir/farnir lista fyrir félögin í Inkasso-deildinni..
Komnir:
Kristófer Páll Viðarsson frá Selfossi
Magnús Þór Magnússon frá Njarðvík
Stefán Birgir Jóhannesson frá Njarðvík
Jóhann Arnarsson frá FH
Adam Pálsson (var í láni hjá Víði)
Farnir
Einar Orri Einarsson í Kórdrengi
Marko Nikolic (óvíst hvert)
Jeppe Hansen (óvíst hvert)
Lasse Rise (óvíst hvert)
Juraj Grizelj (óvíst hvert)
Jonathan Faerber (óvíst hvert)
Sigurbergur Elísson í Reyni S.
Leonard Sigurðsson (óvíst hvert)
Atli Geir Gunnarsson í Njarðvík
Aron Freyr Róbertsson í Hauka
Aron Kári Aðalsteinsson í Breiðablik (var í láni)
Helgi Þór Jónsson í Víði
Hólmar Örn Rúnarsson í Víði
Ivan Aleksic í KR (Var í láni)
Ágúst Leó Björnsson í ÍBV (var í láni)
Sjá einnig:
Danirnir fara frá Keflavík - „Þeir ungu gætu ekki verið á betri stað"