Fotbolti.net
19.12.18 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Steinar Örn aftur í Fjölni (Staðfest)

Steinar Örn Gunnarsson.

Steinar Örn Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markmaðurinn Steinar Örn Gunnarsson hefur skrifað undir samning Fjölni en liðið féll úr Pepsi-deildinni í fyrra.
„Steinar Örn, sem er 27 ára, er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu enda uppalinn Fjölnismaður. Hann hefur verið samfleytt í meistaraflokki Fjölnis síðan 2007 með stuttum stoppum í Aftureldingu og ÍR. Steinar er frábær karakter sem og markmaður." segir á Facebook svæði Fjölnis.

„Við bjóðum Steinar velkominn heim í Grafarvoginn og væntum mikils af honum í framtíðinni."

Steinar lék 17 leiki með ÍR á liðnu tímabili en liðið féll úr Inkasso-deildinni.

Sjá einnig:
Þórður gæti lagt hanskana á hilluna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.