Fotbolti.net
19.12.19 - 09:03
Magnús Már Einarsson

Klopp: Yndisleg kaup

Takumi Minamino

Takumi Minamino

Canon

Mynd: Getty Images

„Þetta eru stórkostlegar fréttir, yndisleg kaup. Við erum virkilega ánægðir með þetta," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir að japanski sóknarmaðurinn Takum Minamino samdi við félagið í morgun.

Minamino kemur frá Red Bull Salzburg á 7,25 milljónir punda en hann vakti athygli Liverpool í leikjum liðanna í Meistaradeildinni í vetur.
„Stuðningsmenn okkar hafa getað fylgst náið með honum nýlega svo ég þarf ekki að tala of mikið um gæðin hjá honum því fólk þekkir þau."

„Takumi er mjög fljótur og mjög klókur leikmaður sem finnur svæði á milli lína. Hann er hugrakkur með boltann en líka án bolta - alvöru liðsmaður. Hann gerir sitt besta til að hjálpa öðrum."

„Meistaradeildarreynsla hans er stór bónus og hann er að koma frá félagi þar sem við vitum að var gott skipulag og hann var vel þjálfaður. Hann er vanur elítu umhverfi og hann hefur réttu reynsluna."


Klopp reiknar með að fjöldi stuðningsmanna Liverpool í Japan muni vaxa hratt á næstunni.

„Ég er viss um að við munum bæta við LFC fjölskylduna í Japan. Fyrir þá sem fara að halda með okkur núna af því að við erum með einn mest spennandi leikmanninn í ykkar landi - þetta er sérstakt félag til að vera hluti af," sagði Klopp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.