Fotbolti.net
19.12.19 - 08:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Minamino gengur í raðir Liverpool 1. janúar (Staðfest)

Minamino gengur í raðir Liverpool 1. janúar (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter

Liverpool hefur staðfest að Japaninn Takum Minamino muni þann 1. janúar opinberlega ganga í raðir félagsins frá Red Bull Salzburg.

Minamino er 24 ára gamall og getur bæði leikið sem sóknarsinnaður miðjumaður eða kantmaður. Minamino kom til Salzburg frá Cerezo Osaka árið 2015.

Hann hefur leikið 136 deildarleiki fyrir austuríska liðið og skorað í þeim leikjum 46 mörk. Þá hefur hann skorað ellefu mörk í 22 landsleikjum fyrir Japan.

„Þetta hefur draumur minn, mig hefur dreymt að spila fyrir Liverpoool. Ég er mjög spenntur að sá tími sé runninn upp," sagði Minamino við undirskriftina.

„Ég bjóst aldrei við því að fá tækifæri á að leika með þessu liði og því er ég mjög glaður að vera kominn. Ég er spenntur fyrir komandi átökum."

Minamino var með ákvæði í samningi sínum og kostar Liverpool 7,25 milljónir punda.
Sjá einnig:
Hver er Japaninn sem Liverpool er að kaupa?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.