20.01.17 - 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jose Fonte genginn í raðir West Ham (Staðfest)

Fonte verður númer 23 hjá West Ham.

Mynd: Getty Images

Fonte verður númer 23 hjá West Ham.

Mynd: Getty Images
West Ham hefur keypt Jose Fonte, fyrirliða Southampton, fyrir 8 milljónir punda. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Lundúnarfélagið.
Hinn 33 ára gamli Fonte, sem var í sjö ár hjá Southampton, bað um sölu frá Souhampton á dögunum, en það voru 18 mánuðir eftir af samning hans.

Eins og áður segir þá er kaupverðið 8 milljónir punda, en það gæti 1 milljón punda bæst við það og þá hefur Fonte möguleikann á að framlengja samning sinn um eitt ár.
Led Reed, yfirmaður knattspyrnumála hjá Southampton, segir að Fonte hafi fengið tækifæri til þess að skrifa undir betrumbættan samning, en hann vildi frekar fara.
Fonte, sem varð Evrópumeistari síðasta sumar með Portúgal, segir að Slaven Bilic, stjóri West Ham, hafi átt stóran þátt í ákvörðun sinni.
„Mér fannst eins og hann vildi virkilega fá mig. Hann seldi mér verkefnið sem er framundan og metnaðinn hjá félaginu,\" sagði Fonte.

#WelcomeFonte
— West Ham United (@WestHamUtd) January 20, 2017
We are delighted to announce the signing of UEFA Euro 2016 winner José Fonte! pic.twitter.com/PudfxHud0e