Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. janúar 2020 17:00
Elvar Geir Magnússon
Arnór Sveinn búinn að framlengja við KR út 2021
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn reynslumikli Arnór Sveinn Aðalsteinsson skrifaði undir samning við Íslandsmeistara KR út tímabilið 2021.

Fyrir áramót sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, að búið væri að semja við Arnór en aðeins ætti eftir að skila samingnum inn.

Arnór lék frábærlega í hjarta varnarinnar hjá KR í fyrra og var valinn í úrvalslið deildarinnar.

Arnór er uppalinn í Breiðabliki en hefur spilað með KR síðan 2017.

Hann verður 34 ára síðar í þessum mánuði en hann bar fyrirliðabandið hjá KR í gær þegar liðið vann Þrótt í Reykjavíkurmótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner