Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. janúar 2020 16:36
Elvar Geir Magnússon
Reinier Jesus til Real Madrid (Staðfest)
Mynd: google/teamtalk
Real Madrid hefur keypt Reinier Jesus, átján ára Brasilíumann.

Sóknarmiðjumaðurinn kemur frá Flamengo en mörg stór félög höfðu áhuga á honum. Kaupverð Real Madrid er sagt vera 25 milljónir punda.

Hann hefur verið orðaður við Paris Saint-Germain, Manchester City , Real Madrid, Juventus og Arsenal.

Táningurinn gekkst undir læknisskoðun hjá Real Madrid nýlega en hann er nú í verkefni með U23 landsliði Brasilíu.

Hann mun fyrst um sinn vera í varaliði Madrídarliðsins.
Athugasemdir
banner
banner