Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 20. janúar 2021 22:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu glæsilegt sigurmark Pogba - „Fallegt mark og fallegur sigur"
Pogba var hetja United í kvöld.
Pogba var hetja United í kvöld.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba var hetja Manchester United þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Fulham í erfiðum leik í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sigurmarkið var glæsilegt hjá Pogba sem hefur verið að spila mjög vel að undanförnu.

Markið má sjá með því að smella hérna.

Þetta er ekki í fyrsta sinn á tímabilinu þar sem Pogba reynist drjúgur. Hann hefur einnig skorað mikilvæg mörk í torsóttum sigrum gegn West Ham og Burnley til að mynda. Eftir að umboðsmaður Pogba, Mino Raiola, sagði að tími hans hjá United væri búinn þá hefur Pogba heldur betur bætt leik sinn.

„Þetta er stór sigur fyrir okkur því þetta var erfiður leikur. Við vissum að þetta yrði erfitt. Þeir pressa mjög vel og eru þéttir. Við þurftum að koma til baka, við þurfum að vinna leikinn og okkur tókst það," sagði Pogba eftir leikinn.

„Mér tókst að hitta boltann vel. Ég bjóst ekki endilega við að það myndi gerast með vinstri fæti. Ef þú reynir ekki, þá tekst það ekki. Þetta var fallegt mark og fallegur sigur."

„Ég elska að vinna, þetta snýst allt um að vinna. Ég er ánægður þegar við vinnum og reiður þegar við töpum," sagði Pogba en Man Utd endurheimti toppsætið af Man City með sigri sínum á Fulham. United er tveimur stigum á undan City sem á þó leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner