Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. febrúar 2020 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sir Alex Ferguson kíkti á dauðvona stuðningsmann
Mynd: Getty Images
Sir Alex Ferguson var í heimsókn á Wythenshawe spítalanum á sama tíma og hinn 32 ára gamli Damien Nixon var með vini sína í heimsókn.

Nixon er með banvænt krabbamein og á ekki mikið eftir ólifað. Hann hefur verið mikill stuðningsmaður Manchester United alla sína ævi og er búinn að skipuleggja jarðaförina sína með Man Utd þema.

Það voru vinir hans sem komu auga á Ferguson á spítalanum þegar hann labbaði inn í herbergi til sjúklings. Þeir biðu fyrir utan dyrnar á herberginu og útskýrðu ástandið fyrir stjóranum er hann gekk út.

„Fergie spurði: 'Hvar er hann?' og fór beint með okkur inn í herbergi til Damien," sagði Samantha Nixon, eiginkona Damien.

„Viðbrögð Damien voru ótrúleg. Hann gjörsamlega dýrkar Man United og eiga allir gestirnir í jarðaförinni hans að klæðast treyju félagsins eða rauðum bol."
Athugasemdir
banner
banner