Knattspyrnudeild Fylkis staðfesti í dag kom eistneska framherjans Tristan Koskor en hann kemur frá Tammeka. Þetta kemur fram á vef Fylkis á Facebook í dag.
Koskor er 23 ára gamall framherji eins og áður segir en hann er uppallin hjá Tammeka sem leikur í efstu deild í Eistlandi.
Koskor hefur verið lykilmaður í liðinu síðustu tvö ár en hann skoraði 21 mark á síðasta tímabili og spilaði meðal annars fyrsta landsleik sinn fyrir Eistland á þessu ári en annar þeirra var gegn Íslandi.
Hann mun spila með Fylkismönnum í sumar en hann gerir aðeins samning út tímabilið.
Mjög áhugavert félagaskipti hjá Fylki og fróðlegt að sjá hvernig Koskor kemur til með að standa sig.
Athugasemdir