Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 20. mars 2019 14:00
Hafliði Breiðfjörð
Peralada, Katalóníu
Kunnuglegt andlit heimsótti landsliðsæfingu Íslands
Icelandair
Balbi heilsar upp á Hannes Þór Halldórsson markvörð Íslands fyrir æfinguna í dag.
Balbi heilsar upp á Hannes Þór Halldórsson markvörð Íslands fyrir æfinguna í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tók í dag lokaæfingu sína í æfingabúðunum í Peralada á Spáni áður en liðið heldur til Andorra á morgun og leikur þar gegn heimamönnum í undankeppni HM 2020 á föstudagskvöldið.

Að þessu sinni var mættur gestur í stúkuna við völlinn til að fylgjast með strákunum æfa.

Það var Gonzalo Balbi fyrrverandi leikmaður KR en eins og frægt var meðan hann lék með vesturbæjarliðinu er hann mágur Luis Suarez sem leikur með Barcelona sem er hérna í 90 kílómetra fjarægð.

Á myndunum sést hvar Balbi heilsar upp á Hannes Þór Halldórsson fyrrverandi liðsfélaga sinn í KR og að neðan situr hann í stúkunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner