Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. mars 2020 09:08
Magnús Már Einarsson
Klopp: Hugsa um leikmennina þegar ég sef
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist hugsa um leikmenn sína allan sólarhringinn, meira segja þegar hann er sofandi.

Klopp hefur gefið frí frá æfingum vegna kórónuveirunnar en hann fylgist með því að leikmenn séu að sinna æfingum heima hjá sér með því að ræða við á í spjallhóp á Whatsapp.

„Allan daginn, meira segja þegar ég sef, þá hugsa ég um strákana. Ég vil það ekki en það gerist bara af því að þú hefur svo mikið af upplýsingum," sagði Klopp.

„Fyrir mér er mikilvægast að leikmaðurinn sé í sem bestu formi þegar það skiptir máli og við reynum að passa upp á næringu, æfingar og taktík."

„Ég þykist ekki hafa áhuga, ég hef áhuga. Það er mikilvægt að þekkja þá sem þú ert að vinna með og vita hvað drífur hann áfram."

Athugasemdir
banner
banner