Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, vill bæta við nýjum framherja í leikmannahópinn fyrir Pepsi Max-deildina í sumar.
Heimir greindi frá þessu í viðtali við Guðmund Benediktsson á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.
Heimir greindi frá þessu í viðtali við Guðmund Benediktsson á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.
„Ef þú lítur á þennan hóp sem þú varst með inn á töflu áðan, þá vantar breidd fram á við. Patrick Pedersen er eina náttúrlega nían í hópnum," sagði Heimir í þættinum.
Sigurður Egill Lárusson fyllti skarð Patrick í fremstu víglínu þegar Daninn var í leikbanni í Lengjubikarnum á dögunum.
„Hann hefur staðið sig vel. Siggi er búinn að spila á vængnum öll þessi ár sem hann hefur spilað með Val. Ég man ekki eftir því að hann hafi spilað neina aðra stöðu og auðvitað tekur það tíma að pússa menn inn í nýjar stöður. Hann hefur gert vel miðað við það," sagði Heimir.
Athugasemdir