The Athletic birtir í dag grein um Granit Xhaka miðjumann Arsenal.  Greinin ber nafnið: „Vinsamlegast segið Granit Xhaka að hætta að skjóta." 
                
                
                                    Xhaka hefur átt 138 skot síðan hann kom í ensku úrvalsdeildina árið 2016 en einungis sjö þeirra hafa endað með marki.
Svisslendingurinn reynir mikið af langskotum og í gerininni er sagt að stuðningsmenn Arsenal verði að hætta að öskra „Shoooooooooot!” þegar Xhaka fær boltann.
Samkvæmt XG tölfræðinni, sem reiknar út líkur á marki miðað við skotfæri, eru líkurnar á marki hjá Xhaka 0.04 þegar hann á skot að marki.
Af þeim leikmönnum sem hafa átt yfir 100 skot frá árinu 2016 er einungis Ruben Neves hjá Wolves með verri XG tölfræði.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
                        
        
         
                    
        
         
                                                                        
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                