Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian var á Emirates-leikvangnum þegar Arsenal féll úr leik í Evrópudeildinni síðasta fimmtudag. Hún var svo mætt til Parísar í gær og sá þar Paris Saint-Germain tapa mjög óvænt.
PSG mætti Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í gær og þurfti þar að sætta sig við 0-2 tap.
PSG mætti Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í gær og þurfti þar að sætta sig við 0-2 tap.
Þetta var fyrsta deildartap PSG á heimavelli í 715 daga.
Einhverjir vilja tengja tap PSG við Kardashian en stuðningsmenn Arsenal grínuðust með það í síðustu viku að það væri bölvun á henni. Stuðningsmenn Arsenal báðu hana um að mæta aldrei aftur á leik hjá félaginu. Í gær sögðu stuðningsmenn PSG það sama á samfélagsmiðlum.
Ungur sonur Kardashian er mikill fótboltaunnandi en hann fékk að tala við brasilísku ofurstjörnuna Neymar í gegnum Facetime fyrir leikinn. Neymar er að glíma við meiðsli og var ekki með í leiknum.
The Kim Kardashian curse pic.twitter.com/41DbYh2rw6
— Troll Football (@TrollFootball) March 19, 2023
? Kim Kardashian goes to watch Arsenal play - they get knocked out of the Europa League
— BlockSports (@Blockbetsports) March 19, 2023
? Kim Kardashian goes to watch PSG play - they're currently losing 0-2
Not a lucky charm... ???? pic.twitter.com/437IW1MQrk
Athugasemdir