Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, verður í leikbanni þegar United spilar við Brighton í undanúrslitum enska FA-bikarsins.
Maguire byrjaði í gær þegar United spilaði við Fulham í átta-liða úrslitunum. Hann fékk gult spjald snemma í leiknum fyrir brot á Aleksandar Mitrovic.
Hann er búinn að fá of mörg gul spjöld í keppninni og verður því í leikbanni í undanúrslitunum.
Það eru líklega einhverjir stuðningsmenn Man Utd sem fagna þessum tíðindum en Maguire hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu þegar hann hefur spilað. Hann hefur samt sem áður verið í algjöru aukahlutverki undir stjórn Erik ten Hag.
Leikur Man Utd og Brighton í undanúrslitunum fer fram þann 22. apríl næstkomandi.
Athugasemdir