Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 16:56
Kári Snorrason
Eyjamenn að fá methafa - „Heyrði að það væri klárt“
Yngsti leikmaður í sögu serbnesku úrvalsdeildarinnar
Stuparevic er yngsti leikmaður sem hefur spilað í serbnesku úrvalsdeildinni.
Stuparevic er yngsti leikmaður sem hefur spilað í serbnesku úrvalsdeildinni.
Mynd: Motherwell
Óliver Magnússon og Arnar Gauti Grettisson voru gestir í Niðurtalningunni á Fótbolta.net.
Óliver Magnússon og Arnar Gauti Grettisson voru gestir í Niðurtalningunni á Fótbolta.net.
Mynd: Kári Snorrason
„Ég heyrði nú í gær að það væri klárt að hann væri að fara skrifa undir, sagði Eyjamaðurinn Óliver Magnússon um serbneska framherjann Filip Stuparevic í hlaðvarpsþættinum Niðurtalningunni á Fótbolta.net í gær.

Serbinn er búinn að vera á reynslu hjá ÍBV undanfarna viku. Hann er 25 ára og var síðast á mála hjá Motherwell í Skotlandi.

Stuparevic afrekaði það árið 2016 að vera yngsti leikmaður í sögu serbnesku úrvalsdeildarinnar þegar hann kom inn á fyrir Vozdovac aðeins 15 ára og 328 daga gamall og er hann enn handhafi metsins.

„Ég heyrði líka að þessi Serbi væri að skrifa undir. Hann er með áhugaverðan feril en maður hefur ekki hugmynd um hvað hann getur. Þetta er yngsti leikmaður sem hefur spilað í serbnesku úrvalsdeildinni. Var keyptur til Watford og var líka í Motherwell.

Hann er að koma úr meiðslum núna. Spennandi leikmaður en það er alltaf einhver ástæða hvers vegna menn með svona feril koma til Íslands,“
kom meðal annars fram í þættinum.

Stuparevic lék á láni frá Motherwell í skosku B-deildinni á síðasta tímabili og skoraði sjö mörk fyrir Greenrock Morton. Hann lék ekkert með Motherwell fyrir áramót og í lok janúar skildu leiðir. Alls lék hann fjóra leiki með Motherwell og skoraði eitt mark.

Hann var á sínum tíma á mála hjá Watford en spilaði ekki fyrir liðið. Hann hefur á sínum ferli spilað í Serbíu, Slóveníu, Skotlandi og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
Athugasemdir
banner