Fotbolti.net
20.04.21 - 18:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Chelsea og Brighton: Kepa áfram í markinu - 8 breytingar

Byrjunarlið Chelsea og Brighton: Kepa áfram í markinu - 8 breytingar
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea mætir Brighton i ensku úrvlalsdeildinni í leik sem hefst klukkan 19:15 og fer fram á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Síminn Sport. Leikurinn átti að hefjast klukkan 19:00 en var frestað vegna atburða kvöldsins.

Chelsea er í harðri Meistaradeildar baráttu en óvíst er hvort hún telji svo sem eitthvað ef Ofurdeildin fer af stað í haust. Liðið er stigi á eftir West Ham og stigi á undan Liverpool. Chelsea vann gegn Man City í undanúrslitum enska bikarsins um helgina og vann 1-4 útisigur gegn Crystal Palace í síðasta deildarleik.

Brighton er sex stigum fyrir ofan fallsæti og gerði markalaust jafntefli gegn Everton í síðasta deildarleik.
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, gerir fimm breytingar frá leiknum gegn City. Kurt Zouma, Andreas Christensen, Marcos Alons, Kai Havertz og Christian Pulisic koma inn í liðið. Kepa Arrizabalaga er áfram í markinu. Þeir Tammy Abraham og Thiago Silva eru ekki í leikmannahópnum í dag.

Graham Potter, stjóri Brighton gerir þrjár breytingar frá leiknum gegn Everton. Adam Webster, Alexis Mac Allister og Dan Burn koma inn í liðið.

Chelsea: Kepa, Zouma, Christensen, Rudiger, James, Jorginho, Mount, Alonso, Ziyech, Havertz, Pulisic.
(Mendy, Chilwell, Emerson, Azpilicueta, Gilmour, Kante, Hudson-Odoi, Giroud, Werner)

Brighton: Sanchez, White, Webster, Dunk, Bissouma, Mac Allister, Trossard, Gross, Welbeck, Burn, Veltman.
(Steele, Maupay, Lallana, Moder, Jahanbakhsh, Alzate, Izquierdo, Propper, Zeqiri)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.