Portúgalski miðjumaðurinn Ana Bral mun spila með Sindra í 2. deild kvenna í sumar.
Ana er 24 ára gömul en hún hefur talsverða reynslu úr úrvalsdeildinni í Portúgal.
Ana er 24 ára gömul en hún hefur talsverða reynslu úr úrvalsdeildinni í Portúgal.
Ana hefur spilað 54 leiki í efstu deild með CF Benfica og Estoril Praia og hefur skorað 11 mörk.
Hún var deildar- og bikarmeistari með Benfica og á leiki í Meistaradeild Evrópu með Benfica.
Ana var síðast á mála hjá Atletico CB í portúgölsku B-deildinni.
Ana getur spilað sinn fyrsta leik með Sindra þegar liðið mætir Einherja í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins laugardaginn 1, maí.
Athugasemdir