Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   lau 20. apríl 2024 22:49
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Meistararnir töpuðu fyrir fallbaráttuliði
Empoli ætlar ekki niður í B-deildina
Empoli ætlar ekki niður í B-deildina
Mynd: Getty Images
Ítalska meistaraliðið Napoli tapaði óvænt fyrir fallbaráttuliði Empoli, 1-0, í Seríu A á Ítalíu í dag.

Hinn 28 ára gamli Alberto Cerri skoraði eina markið á 4. mínútu með skalla eftir eftir sendingu Emmanuel Gyasi.

Napoli var meira og minna með boltann eftir það en ekkert sem vörn Empoli var í einhverjum stórkostlegum vandræðum með.

Empoli gat meira að segja komist í 2-0 á 34. mínútu en Nicolo Cambiaghi klúðraði enn einu færinu á tímabilinu. Kvicha Kvaratskhelia fékk besta færi Napoli í síðari hálfleiknum en Elia Caprile sá við honum.

Sterkur sigur hjá Empoli sem er nú fjórum stigum fyrir ofan fallsæti á meðan Napoli er nú sex stigum frá Meistaradeildarsæti.

Diego Coppola skoraði þá dramatískt sigurmark fyrir Hellas Verona í 1-0 sigri liðsins á Udinese. Markið kom undir lok leiks og er Verona nú í 15. sæti með 31 stig en Udinese í 17. sæti með 28 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Empoli 1 - 0 Napoli
1-0 Alberto Cerri ('4 )

Verona 1 - 0 Udinese
1-0 Diego Coppola ('90 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Atalanta 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Bologna 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Cagliari 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Como 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Empoli 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Fiorentina 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Genoa 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Inter 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Juventus 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Lazio 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Lecce 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Milan 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Monza 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Napoli 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Parma 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Roma 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Torino 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Frosinone 38 8 11 19 44 69 -25 35
18 Udinese 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Sassuolo 38 7 9 22 43 75 -32 30
19 Venezia 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Verona 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Salernitana 38 2 11 25 32 81 -49 17
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner