West Ham gerði markalaust jafntefli gegn Crystal Palace á Selhurst Park í kvöld. West Ham er í 17. sæti, aðeins tveimur stigum á undan Tottenham í fallbaráttunni.
„Þetta var erfiður leikur, er það alltaf gegn Palace. Við áttum góð augnablik í fyrri hálfleik en spiluðum aðeins of mikið til hliðar í seinni hálfleik. Þetta hefði getað farið í báðar áttir," sagði Nuno Espirito Santo, stjóri West Ham.
Man City lagði Arsenal í titilabaráttuslag í gær og aðeins þrjú stig skilja liðin að.
„Þetta fer alla leið. Ekki bara á botninum heldur á toppnum líka. Þetta tímabil hefur verið mjög jafnt," sagði Espirito Santo.



