Gabriel Jesus, framherji Arsenal, var allt annað en sáttur við einn stuðningsmann Manchester City í leik liðanna á Etihad-leikvanginum í gær og fann sig knúinn til að svara manninum.
Brasilíumaðurinn spilaði með Man City frá 2017 til 2022 áður en hann gekk í raðir Arsenal.
Hann hefur oft orðið fyrir aðkasti af hálfu stuðningsmanna síðan enda rígurinn verið mikill á milli liðanna síðustu ár.
Jesus var á bekknum hjá Arsenal í gær og var að hita upp fyrir aftan markið þegar stuðningsmaður Man City kallaði hann Júdas.
Sá brasilíski var ekki lengi að svara fyrir sig og minnti stuðningsmanninn á allt sem hann áorkaði hjá félaginu. Ekki á hverjum degi sem Jesus er kallaður Júdas.
„Ég vann ellefu titla hér,“ sagði Jesus, en myndskeið af þessu má sjá með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Gabriel Jesus hits back at a Manchester City fan calling him a ‘Judas’, as Arsenal lose at The Etihad…
— DailyAFC (@DailyAFC) April 19, 2026
????? Gabriel Jesus: “I have won ELEVEN titles here!” ????? pic.twitter.com/9FHORf47i6




