Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 20. maí 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Nýir mætingagallar Fylkis vekja mjög góð viðbrögð
Djair, Ragnar Bragi og Arnór Borg.
Djair, Ragnar Bragi og Arnór Borg.
Mynd: Brutta Faccia
Fyrrverandi leikmaður Fylkis, Styrmir Erlendsson sá um að hanna nýja mætingargalla Árbæjarfélagsins sem voru opinberaðir í dag.

Merki fatamerkis Styrmis, Brutta Faccia, er framan á bæði buxum og peysu mætingagallans.

Merki Fylkis er prentað bakmegin fyrir neðan hálskraga ásamt ártalinu 1967, árið sem Fylkir var stofnað.

Tvær appelsínugular rendur eru eftir erminni og hliðinni á buxum.

Gallarnir eru saumaðir af Lovísu Tómasdóttur og prentaðir á Íslandi en þeir hafa vakið afskaplega góð viðbrögð eftir að þeir voru kynntir.

Fylkismenn mæta til leiks í göllunum á morgun þegar þeir mæta Keflavík í Pepsi Max-deild karla.

Myndir: Ólafur Alexander
Athugasemdir
banner
banner
banner