Everton bjargaði sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni í gær með 3-2 sigri á Crystal Palace og í kjölfarið braust út gríðarlegur fögnuður á vellinum.
Stuðningsmenn Everton hafa boðið upp á rafmagnaða stemningu seinni hluta tímabilsins og svo sannarlega verið tólfti maðurinn fyrir lið sitt í baráttunni.
Þeir slepptu svo fram af sér beislinu gjörsamlega þegar flautað var til leiksloka í gær, stormuðu inn á völlinn og héltu teitinu gangandi.
Frank Lampard, stjóri Everton, fagnaði vel og innilega með stuðningsmönnunum en myndbönd af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Evertonians 🤝 Frank Lampard 💙 pic.twitter.com/cn9c0Tm7at
— Everton Fans' Forum (@EFC_FansForum) May 19, 2022
Unbelievable scenes and historic night at the Goodison Park after Frank Lampard and his team Everton escaped relegation. pic.twitter.com/1p6r57N58p
— KANKAN BI ƐDƐ 🇬🇭 (@FaroukAgyemang1) May 19, 2022
Athugasemdir