Maignan orðaður við Chelsea á ný - West Ham lítur í kringum sig eftir nýjum stjóra - Ensk stórlið vilja Bremer
Gagnrýnin réttmæt - „Auðvitað á hún rétt á sér þegar við eigum að vera í þessari toppbaráttu“
Túfa: Leikurinn sýndi hvert íslenska deildin er komin í dag
Dóri Árna: Sé ekki betur en að Hólmar hoppi upp og slái í boltann - Vona að ég hafi rangt fyrir mér
Gummi Kri um Jökul: Hann gerir töluvert meira gagn þar heldur en upp í stúku
Heimir: Ef það er einhver sem ég vil að fái svona færi þá er það Bjarni, fyrir utan Björn Daníel
Markmiðið sett eftir Bröndby leikinn: „Búnir að standast prófið hingað til“
Þórarinn Ingi: Ég er bara að vinna hérna og hjálpa til eins og ég get
Segir Sigurð besta dómara landsins - „Búinn að fá alveg nóg og lét gamminn geisa“
Gylfi: Tímabært fyrir dómarana að fá VAR hjálp
Hallgrímur Jónasson: Ég fór á háu nóturnar
Óskar Hrafn: Við höfum örlögin í okkar höndum
Láki: Stundum þarf maður að vera pínu bófi
Birnir Snær: Okkur fjölskyldunni líður ótrúlega vel hérna
Alex Freyr: Þurfum að loka svona leikjum 6 til 7-0
Maggi með ákall til stuðningsmanna - „Þurfum að fylla völlinn og búa til alvöru stemningu"
Stefan Ljubicic: Féll allt á einhvern hátt fyrir okkur
Venni: Þetta er bara leikaraskapur og hann kemst upp með það
Ívar Örn: Manni finnst maður oft vera full gamall
Hemmi Hreiðars: Stórkostlegt að vera komnir þetta langt á kornungu liði
Haraldur Freyr: Hjálpar okkur helling að við vorum í þessum leik í fyrra
   mið 20. júní 2018 08:34
Magnús Már Einarsson
„Rúrik loksins að fá þá viðurkenningu sem hann á skilið"
Icelandair
Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Gíslason hefur gjörsamlega slegið í gegn á Instagram undanfarna daga eftir að hann kom inn á gegn Argentínu. Rúrik er kominn með 622 þúsund fylgjendur á Instagram þegar þetta er skrifað.

„Þetta er fyndið og léttmeti í hópnum. Þetta er skemmtilegt, sérstaklega fyrir hann," sagði Alfreð Finnbogason á fréttamannafundi í dag.

„Þetta byrjaði í klefanum eftir leik þegar hann var kominn í 70 þúsund followers. Skömmu síðar voru það 75 þúsund. Ég veit ekki hvað var að gerast í Suður Ameríku á meðan á leiknum stóð en þetta er gott fyrir hans og hans markaðsvirði."

„Rúrik er loksins að fá þá viðurkenningu sem hann á skilið fyrir þetta ótrúlega look," bætti Hannes Þór Halldórsson við og uppskar hlátur hjá fjölmiðlamönnum.

Rúrik setti enga nýja mynd á Instagram strax eftir leikinn gegn Argentínu.

„Við vorum að stríða honum að það kom ekki mynd í 2-3 daga eftir þessa miklu hylli. Hann er núna með ennþá fleiri fylgjendur sem hann þarf að sinna og þarf að leggja ennþá meiri vinnu í þetta."

„Þetta truflar ekkert undirbúninginn hjá okkur. Þetta er bara skemmtilegt til að dreifa athyglinni á eitthvað annað en fótboltann. Ég get alveg sagt það að honum leiðist þetta ekkert."

Athugasemdir
banner