20.06.18 - 12:09
Ívan Guðjón Baldursson
Juninho Bacuna til Huddersfield (Staðfest)

Juninho í leik með hollenska U20 landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Hollenski miðjumaðurinn Juninho Bacuna er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Huddersfield Town í enska boltanum.
Huddersfield gerði vel á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni og vill David Wagner styrkja hópinn fyrir komandi átök.
Bacuna er aðeins 20 ára gamall og kemur frá Gröningen en hann á 80 leiki að baki í efstu deild hollenska boltans.
„Ég er mjög ánægður með að hafa náð að krækja í Juninho. Hann er mjög góður þrátt fyrir ungan aldur og tekur stöðu Dean Whitehead í hópnum,\" sagði Wagner.