Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 20. júní 2021 18:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Völsungur aftur á sigurbraut
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur 1 - 0 ÍR
1-0 Marta Sóley Sigmarsdóttir ('4)

Völsungur komst aftur á sigurbraut í 2. deild kvenna eftir slæmt tap gegn Fjarðab/Hetti/Leikni fyrir níu dögum síðan.

Í dag tóku Húsvíkingar á móti ÍR á heimavelli sínum fyrir norðan. Þær grænklæddu byrjuðu mjög vel því Marta Sóley Sigmarsdóttir skoraði eina mark leiksins á fjórðu mínútu.

Þetta mark, sem kom snemma leiks, dugði til fyrir Völsung til að vinna leikinn því fleiri urðu mörkin ekki.

Lokatölur 1-0 og er Völsungur núna í þriðja sæti með 15 stig. Þær hafa unnið fimm af sex leikjum sínum til þessa í deildinni. ÍR-ingar eru í níunda sæti með fjögur stig eftir fimm leiki spilaða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner