Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 20. júní 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Uxinn er í plönum Klopp fyrir komandi tímabil
Mynd: EPA
Margir bjuggust við því að Alex Oxlade-Chamberlain myndi yfirgefa Liverpool í sumar. Tækifæri hans hafa verið af skornum skammti og samningur hans rennur út á næsta ári. Fjölmiðlar fullyrtu að hann myndi færa sig um set.

En Liverpool Echo segir að Jurgen Klopp hafi skipt um skoðun og að hinn 28 ára gamli Oxlade-Chamberlain sé í áætlunum Liverpool fyrir næsta tímabil.

Liverpool hefur sett áætlanir um að kaupa nýjan miðjumann í biðstöðu þar til sumarið 2023 og Oxlade-Chamberlain er væntanlegur til æfinga á undirbúningstímabilinu þann 4. júlí.

Jude Bellingham hjá Borussia Dortmund og Youri Tielemans hjá Leicester eru meðal miðjumanna sem sagðir eru á blaði hjá Liverpool.

Fabinho, Thiago og Jordan Henderson byrjuðu flesta leiki á miðsvæði Liverpool á seinni hluta síðasta tímabils. Naby Keita, Curtis Jones og Harvey Elliott voru næstir í röðinni en þrátt fyrir lítinn spiltíma Oxlade-Chamberlain er hann sagður með traust frá Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner