Fotbolti.net
20.07.16 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Alvaro Negredo í Middlesbrough (Staðfest)

Negredo er mættur aftur í enska boltann.

Negredo er mættur aftur í enska boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið framherjann Alvaro Negredo á láni frá Valencia.

Lánssamningurinn gildir út komandi tímabil.

Negredo þekkir til í enska boltanum en hann skoraði 23 mörk í 48 leikjum með Manchester City frá 2013 til 2015 áður en hann fór til Valencia.
Hinn þrítugi Negredo hefur einnig skorað 112 mörk í 264 leikjum í La Liga á ferli sínum.

Negredo á að hjálpa Boro í baráttunni í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili en hann er farinn í æfingabúðir með liðinu á Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.