20.07.16 - 16:14
Arnar Daði Arnarsson
Atli Fannar í Aftureldingu (Staðfest)

Atli Fannar í leik með Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Fannar í leik með Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding hefur fengið framherjann Atla Fannar Jónsson til liðs við sig fyrir síðari hluta sumars í 2. deildinni.
Atli Fannar gengur til liðs við Aftureldingu frá Fram í Inkasso-deildinni.

Atli Fannar hefur einungis komið við sögu í einum leik hjá Fram í sumar en það var í bikarleik gegn HK þar sem hann kom við sögu á síðustu mínútum leiksins.
Atli er uppalinn hjá Breiðablik en hann er fæddur árið 1995 og hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu. Hann lék 19 leiki með ÍBV í Pepsi-deildinni sumarið 2014 og hefur síðan þá verið hjá Víking R. og Fram.
Afturelding er í toppbaráttu í 2. deildinni en liðið er í 3. sæti með 20 stig. Tveimur stigum á eftir Gróttu sem er í 2. sæti.