Fotbolti.net
20.07.16 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Liverpool lánar Bodgan til Wigan (Staðfest)

Liverpool lánar Bodgan til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur lánað markvörðinn Adam Bodgan til Wigan í Championship deildinni.

Ungverjinn, sem kom til Liverpool frá Bolton í fyrra, verður á láni hjá Wigan út tímabilið.

Bogdan spilaði einungis sex leiki með Liverpool á síðasta tímabili og náði ekki að slá í gegn.
Eftir að Loris Karius kom til Liverpool í sumar til að berjast um markvarðarstöðuna við Simon Mignolet, þá var ljóst að Bogdan væri á förum.

Líklegt er að Liverpool fái nýjan mann sem þriðja markvörð en hinn reyndi Alex Manninger hefur æft með liðinu að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.