Fotbolti.net
20.07.16 - 11:04
Magnús Már Einarsson

Ragnar Klavan til Liverpool (Staðfest)

Ragnar Klavan til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Liverpool

Liverpool hefur keypt varnarmanninn Ragnar Klavan frá Augsburg í Þýskalandi á 4,2 milljónir punda.
Ragnar á að berjast við Joel Matip, Dejan Lovren, Mamadou Sakho, Joe Gomez og Tiago Ilori um stöðu í hjarta varnarinnar.

Hinn þrítugi Ragnar er mjög reynslumikill en hann á yfir 100 landsleiki að baki með landsliði Eistlands.

„Það er mikill heiður að vera hluti af þessu ótrúlega félagi,\" sagði Ragnar eftir undirskrift.

„Það er erfitt að lýsa þessu því að það hefur verið draumur minn í 22 ár að koma í ensku úrvalsdeildina og vera hluti af þessu ótrúlega félagi, Liverpool.\"

Ragnar is a Red! 🔴 #KlavanToTheKophttps://t.co/mTuyh4kuY4

— Liverpool FC (@LFC) July 20, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.