20.07.16 - 17:42
Elvar Geir Magnússon
Stóri Sam nýr landsliðsþjálfari Englands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
BBC hefur greint frá því að búið sé að ráða Sam Allardyce sem nýjan landsliðsþjálfara Englands. Formleg staðfesting er væntanleg frá enska knattspyrnusambandinu.
Allardyce tekur við af Roy Hodgson sem sagði upp eftir að England tapaði fyrir Íslandi í 16-liða úrslitum Ebvrópumótsins í Frakklandi.
Enska knattspyrnusambandið ræddi við Allardyce og Steve Bruce en Allardyce var efstur á blaði.

Allardyce, sem er 61 árs og er fyrrum stjóri West Ham, Newcastle og Bolton, yfirgefur Sunderland eftir níu mánuði við stjórnvölinn.
Fyrsti mótsleikur hans sem landsliðsþjálfari verður gegn Slóvakíu í undankeppni HM þann 4. september.
Allardyce hefur á ferli sínum stýrt 467 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en aðeins Sir Alex Ferguson, Arsene Wenger og Harry Redknapp hafa stýrt fleiri leikjum í deildinni.