KA hefur tekið ákvörðun um að lána Ólaf Aron Pétursson til nágrannana í Magna á Grenivík.
Hann mun því spila með liðinu út tímabilið í Inkasso deildinni.
Ólafur Aron er á 23. aldursári. Hann hefur verið að spila með KA í Pepsi-deildinni í sumar, alls sex leiki auk eins leiks í Mjólkurbikarnum.
Hann hefur allan sinn feril spilað með KA, alls 49 leiki í deild og bikar og skorað þrjú mörk.
Magni er í botnsæti Inkasso-deildarinnar og hefur aðeins fengið sex stig úr fyrstu 11 leikjum mótsins.
Athugasemdir