þri 20. júlí 2021 13:15
Elvar Geir Magnússon
Reiðir stuðningsmenn Spezia mættu á æfingu Fiorentina
Vincenzo Italiano.
Vincenzo Italiano.
Mynd: EPA
Hópur stuðningsmanna ítalska liðsins Spezia mætti á æfingu Fiorentina í morgun og veittust að þjálfaranum Vincenzo Italiano.

Italiano tók við þjálfun Fiorentina og gerði tveggja ára samning við félagið. Fiorentina hafði virkjað riftunarákvæði í samningi hans við Spezia.

Spezia sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu og sagði að Italiano hefði sýnt félaginu vanvirðingu.

Stuðningsmenn Spezia mættu á æfingu Fiorentina í morgun og létu Italiano heyra það fyrir að hafa yfirgefið sitt félag.

Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum þá reiddist Italiano og svaraði til baka, hann sagðist hafa verið tvö ár hjá félaginu þrátt fyrir að hafa ekki fengið þau laun sem hann átti skilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner