Fotbolti.net
20.08.16 - 12:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bjarni Jó hættur með ÍBV (Staðfest)

Bjarni Jó er hættur með ÍBV

Bjarni Jó er hættur með ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnuráð karla hjá ÍBV og þjálfarinn Bjarni Jóhannsson hafa komist að samkomulagi um starfslok að ósk Bjarna.

Frá þessu greindi ÍBV nú fyrir stuttu í fréttatilkynningu.
Bjarni tók við ÍBV eftir síðasta leiktímabil, en hann þekkir gríðarlega vel til í Eyjum eftir að hafa þjálfað liðið frá 1997 til 1999. Liðið varð Íslandsmeistari undir hans stjórn 1997 og 1998 og árið 1999 endaði liðið í 2. sæti í deildinni. ÍBV varð einnig bikarmeistari undir stjórn Bjarna árið 1998.

Hann náði ekki sama árangri núna og er liðið í 10. sæti með 17 stig í Pepsi-deild karla. Bjarni kom ÍBV þó alla leið í bikarúrslit, en þar tapaði liðið fyrir sterku liði Vals um síðustu helgi, 2-0.

„ÍBV þakkar Bjarna fyrir gott starf og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Bjarni Jóhannsson þakkar einnig ÍBV, starfsfólki þess og stuðningsmönnum liðsins fyrir samveruna og samstarfið á keppnistímabilinu,\" segir í fréttatilkynningu frá ÍBV.

Alfreð Elías Jóhannsson og Ian David Jeffs munu taka við stjórn liðsins fyrst um sinn og væntanlega sjá um stýra liðinu út þetta tímabil.

ÍBV þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Fylki á fimmtudaginn og það reyndist síðasti leikur Bjarna með liðið. Næsti leikur Eyjamanna er gegn Víkingi R á útivelli á mánudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.