Fotbolti.net
20.08.16 - 09:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Christian Benteke til Crystal Palace (Staðfest)

Benteke er mættur til Crystal Palace

Benteke er mættur til Crystal Palace

Canon

Mynd: Heimasíða Crystal Palace

Sóknarmaðurinn Christian Benteke er genginn í raðir Crystal Palace, en hann kemur til liðsins frá Liverpool.

Hann er langdýrasti leikmaðurinn í sögu Crystal Palace og kostar hann félagið 27 milljónir punda. Það verð gæti svo hækkað upp í 32 milljónir punda með tímanum.
Hinn 25 ára gamli Benteke skrifaði undir fjögurra ára samning við Palace, en hann mun eflaust styrkja liðið mikið í baráttunni í ensku úrvalsdeildinni.

Benteke kom til Liverpool frá Aston Villa á 32,5 milljónir punda fyrir ári síðan, en hann náði ekki að stimpla sig inn á Anfield. Hann var ekki í áætlunum Jurgen Klopp og fékk því að fara.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Crystal Palace fær til sín í sumar, en áður höfðu James Tomkins, Steve Mandanda og Andros Townsend samið við félagið.

„Ég er mjög ánægður að skuldbinda framtíð mína við Crystal Palace og ég er spenntur fyrir því að hitta þjálfarann, leikmennina og starfsliðið,\" sagði Benteke þegar kaupin gengu í gegn.

It\'s official! #CPFC sign Benteke on a four-year deal from Liverpool - https://t.co/Khxi7Db3wo #WelcomeChristian pic.twitter.com/2egijhmbSH

— Crystal Palace F.C. (@CPFC) August 20, 2016

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.