20.08.16 - 10:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Roberto Pereyra til Watford (Staðfest)

Pereyra er genginn til liðs við Watford

Mynd: Getty Images

Pereyra er genginn til liðs við Watford

Mynd: Getty Images
Watford er búið að ganga frá kaupunum á miðjumanninum Roberto Pereyra, en hann kemur frá ítalska stórliðinu Juventus.
Pereyra skrifaði undir fimm ára samning við Watford og líklegt þykir að hann sé sá dýrasti í sögu félagsins. Isaac Success var sá dýrasti þegar hann var keyptur frá Granada fyrir 12,5 milljónir punda í sumar, en talið er að Pereyra hafi bætt það met.
Pereyra er annar leikmaðurinn sem Watford kaupir á jafnmörgum dögum þar sem í gær voru kaupin á varnarmanninum Younes Kaboul staðfest. Pereyra þarf að bíða eftir atvinnuleyfi svo hann geti spilað fyrsta leikinn með Watford.
Þeir sem eiga Watford þekkja ansi vel til Pereyra, en það eru sömu aðilar og eiga Udinese á Ítalíu. Þar spilaði Pereyra frá 2011 til 2015 og var mjög vinsæll þar á bæ áður en hann fór svo til Juventus.
Hjá Juventus náði hann ekki að festa sig í sessi og því er hann búinn að færa sig um set í ensku úrvalsdeildina þar sem hann mun spila með Watford næstu árin.

OFFICIAL: #watfordfc are delighted to confirm the signing of Roberto Pereyra from Juventus on a long-term deal. pic.twitter.com/4qiQWqFu86
— Watford FC (@WatfordFC) August 19, 2016
Heimild: Heimasíða Watford