Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 20. ágúst 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Fyrrum Eyjamaðurinn framlengir við Sheffield United
Mynd: Getty Images
George Baldock hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Sheffield United.

Baldock spilaði með ÍBV á láni frá MK Dons í Pepsi-deildinni árið
2012.

Hann skoraði eitt mark í fimmtán leikjum í Pepsi-deildinni. Baldock var þá miðjumaður en undanfarin ár hefur hann spilað í hægri bakverði hjá Sheffield United og hann lék 27 leiki þegar liðið fór upp úr Championship deildinni í vor.

Baldock hefur byrjað báða leiki Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en liðið er með fjögur stig eftir tvo leiki.

„Þetta er búið að byrja mjög vel hjá okkur. Við höfðum trú á því að við gætum byrjað vel og það var raunin. Við náðum þremur frábærum stigum gegn Crystal Palace svo gerðum við gott jafntefli við Bournemouth," segir Baldock.
Athugasemdir
banner
banner