20.08.26 - 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Carrick hæstánægður með Rashford - „Hann er klár í slaginn“

Mynd: Manchester United

Carrick ætlar að styrkja hópinn fyrir gluggalok en Carlos Baleba er sagður á leið til félagsins frá Brighton

Mynd: EPA

Mynd: Manchester United
Michael Carrick, stjóri Manchester United, hefur mikla trú á Marcus Rashford og telur hann geta fært liðinu mikið á komandi tímabili.

TENGT EFNI
Rashford biður sérfræðingana um frið
Rashford sneri aftur til Manchester United í sumar eftir lánsdvöl hjá Barcelona, sem ákvað að nýta ekki kaupákvæðið í samningi hans.
Eftir síðasta tímabil fór hann með enska landsliðinu á HM. Hann sneri aftur til United á dögunum og lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í tæp tvö ár þegar hann kom inn af bekknum í 4-2 tapinu gegn AC Milan.
United heimsækir nýliða Hull um helgina og er talið líklegt að Rashford verði í leikmannahópnum.
„Marcus hefur komið frábærlega til baka. Hann nýtur þess að spila fótbolta og virðist vera í góðu formi. Hann er snöggur, sterkur og tilbúinn að spila. Ég hef verið hæstánægður með hann síðan hann sneri aftur.“
„Hann getur spilað fremstur og hefur gert það áður. Ég myndi ekki segja að það væri hans besta staða en hann getur leyst hana. Við erum með sóknarmenn sem gefa okkur mikinn sveigjanleika í fremstu línu.“
„Við höfum notað þá í ólíkum hlutverkum og það verður mjög mikilvægt að hafa þessa möguleika í gegnum tímabilið,“ sagði Carrick.
Félagaskiptaglugginn lokar í lok mánaðar og United reynir nú að ganga frá kaupum á Carlos Baleba frá Brighton. Carrick vonast til að geta styrkt hópinn frekar áður en glugginn lokar.
„Við reynum að styrkja hópinn og vinnum að því að nýta þau tækifæri sem gefast. Markmiðið er að enda gluggann með sterkara lið en við vorum með í upphafi hans. Það hefur gengið ágætlega hingað til,“ sagði Carrick.