Bournemouth lagði Southampton að velli á St. Mary's leikvanginum fyrr í kvöld.
Gestirnir frá Bournemouth leiddu 0-2 í hálfleik en heimamenn tóku stjórn á leiknum eftir leikhlé og voru snöggir að minnka muninn.
Þrátt fyrir meira en 20 marktilraunir tókst Southampton ekki að jafna og innsiglaði Callum Wilson sigur sinna manna með marki í lokin.
„Við vorum ekki uppá okkar besta í kvöld en við sýndum mikið hjarta og börðumst hetjulega til að tryggja sigurinn," sagði Howe að leikslokum.
„Við héldum boltanum ekki nógu vel og okkur hefði verið refsað á öðrum degi en við sluppum í dag. Aaron stóð sig vel í markinu og við vitum að við getum spilað mikið betur."
Athugasemdir